Ný síða!! =D
komin með nýja síðu! =Pwww.lachicaloca.bloggar.is
Endilega kíkið við =D
María :)
Það verður nice að fá aftur reglu á lífið, skóli, vinna, ræktin 
og leikurinn geðveikur! .. Allt æði sko .. =)
Svo .. er maður að fara að skella sér í leiklistarskóla sem fyrst ?
smurning, spurning :P
veit ekkert hversu góð ég er að dansa 


úff..

Ég get ekki beðið! .. Þá tekur við ferðalag til London og síðan Króatíu með mömmu og systrum mínum, en Thelma frænka er að farað gifta sig í Króatíu þann 9unda Júní :) Það verður svaka stuð og stemming! .. 



Og jamm, þá er það komið.. sem eg er búin að plana .. 

- Ég er með svona ..eiginlega sömu sídd að framan og ég var með .. en svona stutt aftan á .. æji .. allavegana mjög töff, fullt af styttum og fínerí! .. ég er allavegana ýkt ánægð! 


Það var spjallað.. drukkið og skemmt sér ! Þegar leið á kveldið og klukkan um 4.. þá endaði ég á stefnumóti með klósettinu sem var ekki eins gaman ... þetta stefnumót hélt áfram eitthvað fram eftir degi í gær - en ég var góð seinni part dags í gær .. og er góð í dag

Já.. þetta er eitur .. en áhrifin af þessu eitri eru sannarlega skemmtileg .. í hófi! 
Ég er svo nægjusöm sko 
Jújú kæru vinur nær og fjær..
María er komin aftur ..! ..
Ég nenni samt ómögulega að tíunda það hér hvað á daga mína hafa drifið.. hápunktarnir eru samt án efa Svíþjóðarferð 2-6.nóv sem ég fór í ásamt skólanum (11 nemendur + 1 kennslukarl) Heví stuð allan tímann.. og maður kynntist krökkunum í áfanganum mjög vel.. samt kynntist ég Ingunni minni best - enda vorum við rúmís í ferðinni .. enda var hún einstaklega heppin að fá mig sem rúmí! ha? ehaggi?
Svo fór ég á Myrkramessuna (aðalball MK á haustönn). 12.nóvember .. sem var sunnudagur .. enda er þetta MyrkraMESSA og eru ekki messur yfirleitt á sunnudögum. Í svörtum fötum spilaði og Páll Óskar þeytti skífum, þetta var bara æðislega gaman! ..
En já.. svo í skólanum eru bara verkefni og próf enda er síðasta vikan í skólanum í næstu viku! .. svo það er lítið eftir. Þá hefst próf tími, sem þýðir að ég er eiginlega komin í frí. Fer bara í 1 próf! ..Yeah! .. í sálfræði 13.des! .. svo ég verð bara að vinna og svona fínerí!
Við fjölskyldan ákváðum svo að fara EKKI til Kanarí um jólin - heldur ætlum við að halda heilög jól hér heima - það verður rosa nice og erum við öll að komast í jólafíling .. rosa nice.
Heyrðu já! .. Þór er líka búinn að fá íbúð.. er að leigja í Keflavík.. 100 og eitthvað fermetra íbúð sem afi hans á .. ásamt Gústa vini sínum . á skít og ingenting! ..svo ég er soldið mikið þar... enda er ég komin með lita þema í hvert herbergi og svona .. þetta er allt að verða rosa kósí .. og vil ég þakka sjálfri mér fyrir það ![]()
En já.. ! .. ég er á lífi .. er hress og bara .. blogga sem fyrst aftur fyrir þyrsta´aðdáendur! ;Þ
Kveðja,
María - comeback!